Starfshópur um skipulagsbreytingar hefur störf

Sæl öll!

Starfshópur um skipulagsbreytingar hefur hafið störf. Tilkynning þess efnis var áðan birt á piratar.is, sem ég læt fylgja hér til upplýsingar og umræðna:

Framkvæmdaráð hefur skipað starfshóp um skipulagsbreytingar innan Pírata. Starfshópurinn var settur á fót og stofnaður af framkvæmdaráði í kjölfar fundaraðar sem haldin var á síðasta ári af Snæbirni Brynjarssyni um skipulag félagsins til framtíðar. Hópurinn hefur þegar hafið störf og verður hann að störfum fram til aðalfundar Pírata í haust, þar sem afrakstur vinnunnar verður kynntur.

Á fyrsta fundi starfshópsins var ákveðið að tryggja fyllsta gegnsæi um störf hans og auðvelda möguleika félagsmanna á aðkomu að störfum hans. Í því skyni var ákveðið að birta allar fundargerðir hópsins og að gera þær aðgengilegar jafnóðum um leið og þær verða samþykktar. Að auki verða öll gögn sem hópurinn notar við vinnu sína aðgengileg á opnu vefsvæði. Enn fremur var ákveðið að opna fyrir tillögur og hugmyndir frá félagsfólki, en hægt er að senda þær á skipulag@piratar.is.

Á fyrsta fundi var ákveðið að skipa formann hópsins, sem ber ábyrgð á framgöngu vinnunnar og starfar sem tengiliður við aðra aðila innan og utan hópsins. Einnig var ákveðið að velja ritara, hvers hlutverk sé að halda og birta fundargerðir og halda utan um gögn. Ritari ber einnig ábyrgð á gerð lagabreytingartillagna. Helgi Hrafn Gunnarsson bauð sig einn fram til formanns og Baldur Karl Magnússon bauð sig einn fram til ritara, og voru þeir kjörnir með öllum atkvæðum.

Öll gögn hópsins auk fundargerða má nálgast á þessari vefslóð:
https://office.piratar.is/index.php/s/zzSpPAQo5gkJskB

Ályktun félagsfundar um stofnun starfshópsins má finna hér:
https://office.piratar.is/index.php/s/kBmgPHNsrAyRQnc

3 Likes

Þetta er sama skjalið í tvíriti.

Afsakið þetta! Ætti að virka núna.

1 Like